Um mig
LAUFEY ÓSK
HVER ER KENNARINN?
Laufey Ósk Jóns, gagnasérfræðingur
Ég er gagnasérfræðingur með mikinn áhuga á fólki. Ég er sérfræðingur í því hvernig er hægt að skilja fólk og mannlega hegðun, bæði í tölum og tali.
Ég hef þar að auki mikinn áhuga á því að hjálpa öðrum að skilja hlutina sem ég veit. Þess vegna gerði ég þessa vefsíðu, vegna þess að ég hefði svo sannarlega þurft hana þegar ég var fyrst að læra tölfræði.
Menntun
M.Sc. í Hagnýtri sálfræði: Megindleg sálfræði
Háskóli Íslands 2023-2025
Tók þátt í að staðla nýja íslenska þýðingu af PHQ-9 þunglyndiskvarðanum. Tók 11 tölfræðiáfanga, þar á meðal í aðferðum fyrir undirliggjandi breytur og "machine learning".
B.Sc. í Sálfræði
Háskóli Íslands 2020-2023
Tók meðal annars félags-, þroska-, og hinsegin sálfræði. Lokaverkefnið fjallaði um líðan minnihlutahópa þar sem við hönnuðum og framkvæmdum alla hluta sjálf.
Framhaldspróf í klassískum einsöng
Söngskólinn í Reykjavík 2018-2025
Lauk framhaldsprófi í klassískum einsöng með góðum árangri.
Starfsreynsla
Persónulegur ráðgjafi / Liðsmaður
Hafnarfjarðarbær 2022-2025
Hjálpaði börnum og unglingum að auka félagsþroska með persónulegri þjónustu. (Froskur, ljósmyndaður af skjólstæðing og birt með leyfi einstaklingsins)
Ýmis sumarstörf sem stuðningsfulltrúi
Ýmsir vinnustaðir 2020-2024
Var stuðningsfulltrúi á sambýli fyrir fatlað fólk, starfsmaður í umönnun á hjúkrunarheimili og stuðningur fyrir fatlað fólk í sjálfstæðri búsetu.
Námskeið
Sænska
Folkuniversitetet ágúst og september 2025
Tók grunnnámskeið í sænsku.
Power BI
Coursera sumar 2025
Fékk færni í bæði Microsoft Excel og Microsoft Power BI.
Verkefni
laufeyosk.com
Ágúst 2025 -
Vefsíða til að hýsa tölfræðinámskeið fyrir grunnnema í háskóla.
Tölfræðinámskeiðsgerð
Júní 2025 -
Bjó til valfrjálst námskeið fyrir nemendur sem vilja fá meiri skilning á tölfræði.
Söngur
Kammerkórinn Huldur
2021-2025
Er stofnmeðlimur í kórnum, og með þeim hef ég frumflutt hátt í 50 ný íslensk tónverk.
Graduale Nobili
2019-2025
Söng inn á plötuna Vökuró, tók þátt í uppsetningu af Hnotubrjótnum, og söng á ýmsum viðburðum Alþingis.
Hamrahlíðarkórinn
2018-2025
Tók þátt flestum verkefnum kórsins, þar á meðal tökum á kvikmyndinni Cornucopia og tónleikar með Björk í Lissabon, og upptökur á plötunni Come and Be Joyful.
Laufey Ósk Jóns
Gagnasérfræðingur og klassískur söngvari
Ég er opið fyrir nýjum atvinnutækifærum þannig að endilega hafðu samband ef þú ert með einhverjar spurningar.