Síðustu mánuði hef ég verið að undirbúa þessa síðu. Ég hef eytt (að mínu mati) óteljandi klukkustundum í það að leysa tölfræðidæmi, finna út úr því hvernig best er að útskýra erfið tölfræðihugtök á einfaldan máta og gera heiðarlega tilraun til þess að setja upp þessa síðu. Núna, vonandi, ætti þessi síða að fara að virka og vonandi getur einhver lesið þennan póst einhverntíman. Ég hlakka allavega töluvert til þess að geta sýnt fólki síðuna.