Nú (loksins) er fyrsti kafli í námskeiðinu Tölfræði 1 kominn í loftið! Þetta er kafli um gögn og grunn upplýsingar um það hvernig á að meðhöndla þau. Ég fer meðal annars yfir hvernig á að reikna meðaltal og staðalfrávik í höndunum, hvaða myndrit eru góð (og segi nokkrar persónulegar skoðanir um þau) og geri heiðarlega tilraun til að útskýra normaldreifingu á eins einfaldann hátt og mögulegt er. Vonandi nýtist þessi kafli fyrir einhver ykkar!